"Data is the new oil" eru þau alltaf að segja. Þetta hefur verið einhverskonar slagorð í tækniheiminum undanfarinsegjum tíu ár. Auðvitað hafa slagorðin verið fleiri og ekki alltaf svona, en þetta hefur sannarlega flogið hátt.
Ég hef setið fundi, meiraðsegja á stjórnsýslustiginu, þar sem þetta er viðkvæðið. Að gögnin sem við söfnum séu svo verðmæt að þau munu knýja áframhaldandi veldisvöxt kapítalismans. Að ef við getum bara hagnýtt okkur gögnin þá verðum við rík eins og Norðmenn.
Sök sér að siðlausir kapítalistar sjái tækifæri í því að með sífelldu eftirliti, hvort sem það er augljóst eða dulið, skapi þeir einhverskonar iðnað sem hagnast á þessu eftirliti. En hið opinbera? Ekki ætla ég að taka þátt í því.
En færum þessa líkingu með gögnin og olíuna áfram. Hvað er olía? Áður en við höfum dælt henni upp úr Norðursjónum eða eyðimörkum Afríku og sett í gegnum flókið, langt og mengandi ferli sem við köllum olíuhreinsun í olíuhreinsistöðvum, þá er olía mengandi efni. Og meiraðsegja líka þegar því ferli er lokið. Það þarf að hafa hemil á henni. Olía eyðir lífi. Olía er ekki eins og vatn. Það þarf að vernda umhverfið fyrir olíu. Olía er spilliefni.
Og þannig er það líka með gögnin. Öll þessi gögn sem verða til í sífelldu eftirliti tækninnar með okkur. Allir leitarstrengirnir, öll gps-hnitin. Allar símaskrárnar sem öppin í símunum senda eitthvert. Allur tölvupósturinn. Þetta endalausa eftirlit sem skapar öll þessi gögn. Og ekki bara það sem við látum af hendi, heldur fólkið sem á samskipti við okkur - hvernig gögnin þeirra búa til mynd af okkur. Gögn eru nefnilega spillefni. Sumt látum við af hendi með einhverskonar samþykki, en meirihlutinn verður til við rafrænt eftirlit sem við gáfum aldrei leyfi fyrir.
Við ættum algjörlega að hugsa um gögn sem hina nýju olíu. Sem spilliefni.
Hérna er smávægis lesefni í þessum anda.
Data isn't the new oil, it's the new CO2
'Anonymised' data can never be totally anonymous, says study
The Algorithmic Colonization of Africa
How big data got so powerful
Welcome to 5G: Privacy and security in a hyperconnected world (or not?)
Bestu,
ph
Hér eru eldri tölublöð.
Hér er ég á twitter.
Hér er einhverskonar vefur.
Hér er netfangið mitt.
Þú getur sagt upp áskriftinni eða skráð þig
hérna.